Vitleysa

Hverfum til baka til ársins 1944 á Íslandi. Við stofnum lýðveldi og segjum okkur frá Dönum, en Vestfjarðakjálkinn t.d. eða Vestmannaeyjar ákveður að gera það ekki og lýsir yfir sjálfstæði. Lýðveldið pælir ekki í því um stund en ákveður er það styrkist að sækja til baka lönd sín og sækir þessi héruð. Þá koma prófastar kirkjunnar til sögunnar og segja þau sjálfstæð, hringja kirkjuklukkum og bulla af trúarlegum ástæðum út í eitt. Auðvitað er ekki hlustað á það heldur eru þessi héruð látin lúta lögum og aðstæðum öðrum hlutum landsins.

Þannig gerðist þetta í Tíbet sem hafði verið hluti Kína í hundruðir ára en reyndu að bulla sig frá því er Keisaraveldið féll. Bull bara eins og Dalai Lama er að reyna bulla í okkur. Kínverjar náðu bara í "héraðið Tíbet"er þeir urðu að nýju nógu sterk þjóð til þess enda var og er Tíbet hluti Kína. Ekkert athugavert við það.

Tíbet er eins og önnur héruð Kína óaðskiljanlegur hluti Kína eins og sýslur Íslands eru óaðskiljanlegur hluti Íslands og svo mun alltaf verða. Ofsatrúarfólk eins og munkarnir frá Tíbet eiga ekkert erindi hingað fekar en annað ofsatrúarfólk.

Dalai Lama á ekkert erindi til Íslands sem fulltrúi Kínverja, aðeins fulltrúar Kínverja eiga það erindi.

Sleppum að mæta á og hlusta á svona bull.

með sjálftæðiskveðju

Arnar

 


mbl.is Dalai Lama í heimsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Arnar,

Mér finnst nú pistill þinn frekar ofsakenndur ertu kannski ofsatrúar á skoðanir þínar? Ef svo er, þá hlýtur þú að vera ofsatrúarmaður samkvæmt þínum eigin orðum, sem dæma sig sjálf.

Lifðu heill,

Kær kveðja,

Elín

Elín (IP-tala skráð) 31.5.2009 kl. 23:37

2 identicon

Hefurðu lesið um hvað kínverjar hafa gert við tíbeta? Bara að pæla.

Arngrímur (IP-tala skráð) 31.5.2009 kl. 23:59

3 Smámynd: Arnar G. Hjaltalín

Sæl Elín

Þessir munkar eru í okkar skilningi ekki bara sértrúarsöfnuður heldur nota þeir skoðanir sínar til að hvetja til uppreisnar og þ.h. við þekkjum það t.d. frá strangtrúuðum gyðingum er reyna að steypa stjórn Ísraels. Einnig frá öfgatrúuðum Íslamistum samanber Al Kaida. Frá Kristnum mönnum og konum er vilja banna t.d. konur sem presta og margt verra (Biblíubeltið í Bandaríkjunum)Þetta fólk er ekki hryðjuverkafólk eins og við þekkjum það í dag en stefna þess hefur kallað miklar hörmungar yfir stóran hluta íbúa Kína er búa í héraðinu Tíbet.

Já og reyndar ér ég enginn ofsatrúarmaður, er bara hlutlaust sóknarbarn í Landasókn í Vestmannaeyjum.

Kveðja

Arnar

Arnar G. Hjaltalín, 1.6.2009 kl. 00:01

4 Smámynd: Lárus Vilhjálmsson

Talandi um vitleysu ættir þú að reyna að kynna þér sögu Tíbets áður en þú skrifar svona vitleysu. Eins og Ísland var Tíbet sjálfstætt ríki þar til á þrettándu öld þegar Mongólar (sem þá réðu Kínaveldi)  tóku völd þar, með vopnavaldi ólíkt því þegar Ísland féll undir danakóng. Næstu 7 aldirnar var Tíbet undir valdi Kínverja (eins og Ísland undir dönum)  þar  til þeir lýstu yfir sjálfstæði árið 1913 (Ísland fékk fullveldi 1918) . Árið 1950 lögðu kínverjar síðan landið undir sig með vopnavaldi.  Í ljósi sögunnar ættu íslendingar einmitt að styðja tíbeta heilshugar í sjálfstæðisbaráttu þeirra. Og svo held ég að þú ættir að lesa verk orð Dalai Lama áur en þú kallar hann ofsatrúarmann. 

Lárus Vilhjálmsson, 1.6.2009 kl. 00:03

5 Smámynd: Árni Björn Guðjónsson

Boðskapur Dali Lama er eitt það göfugasta í þessum heimi.Fyrirmynd alls boðskaps.

Árni Björn Guðjónsson, 1.6.2009 kl. 00:15

6 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Arnar. Finnst þér kanski að Ísland ætti að byrja að skipta sér niður í ríki í ríkinu? Er það kanski eina friðarlausn íslendinga að þínu mati? Sundrung?

Hefur þú ekki trú á að sameinaðir stöndum vér og sundraðir föllum vér? 

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 1.6.2009 kl. 00:17

7 identicon

Fyndið þegar menn eins og þú, Arnar, tjáið ykkur um hluti sem þið hafið ekki kynnt ykkur að nokkru leiti. Veit samt ekki hvort það eigi að teljast fyndið, kannski frekar sorglegt.

Farðu nú að lesa sögubækurnar betur.

Viktor (IP-tala skráð) 1.6.2009 kl. 00:24

8 Smámynd: Arnar G. Hjaltalín

Sæll Lárus

Kínverka keisaraveldið féll árið 1911, mánuði efir það lýstu flest öll héruð Kína einhliða yfir sjálfstæði þ a. m. Tíbet árið 1913. T.d. má geta þess að í mars árið 1912 er kveðið á í stjórnarskrá þjóðernissinna að Tíbet sé hluti Kína, þannig að þjóðernissinnar lytu á Tíbet einnig að sjálfsögðu sem hluta Kína. Borgarastyrjöld ríkti meira og minna frá þeim tíma fram til 1949 er kommúnistar náðu völdum. Eftir að ró komst á þá sótti Alþýðulýðveldið Tíbet aftur til sín árið 1950.

Ef við ætlum að lýta til baka til sögunnar þá skulum við vona að hún endurtaki sig ekki þarna og horfum til balkanskagans. Þar voru tyrkir við völd fram til 1150 ca og enn er barist og fólk drepið vegna þess.

Eigum við kannski að skipta heiminum eins og hann var ca. árið 1200, þá værum við norðmenn nú :)

Hvað segir þú um um Xinjiang héraðið í Kína annars, sjálfstæði líka?

Kveðja

Arnar

Arnar G. Hjaltalín, 1.6.2009 kl. 00:27

9 Smámynd: Arnar G. Hjaltalín

Sæll Viktor

Hef verið mikið í Kína, kynnt mér sögu þess og umgengist mikið af hlutlausum fræðikonum og mönnum sem hafa veitt mér hlutlaust af viskubrunni sínum.

Kveðja

Arnar

Arnar G. Hjaltalín, 1.6.2009 kl. 00:31

10 Smámynd: Arnar G. Hjaltalín

Eitt enn Lárus

Ég er að hugsa um að fara til Costa del Sol í sumar ef gott tilboð býðst á þeim ferðum.

Væri réttlátt að það landsvæði væri hluti Tyrkneska heimsveldisins núna þar sem það var það á sama tíma og Tíbet varð hluti Kína?

Hugsa ekki reyndar.....

Kveðja

Arnar

Arnar G. Hjaltalín, 1.6.2009 kl. 00:49

11 identicon

Arnar, snýst málið endilega um söguna? Er ekki það sem máli skiptir að Tíbetar upplifa sig sem þjóð en ekki sem hluta af hinu kínverska alþýðulýðveldi?

Ef t.d. Vestmannaeyjingar gætu alls ekki upplifað sig sem hluta af lýðveldinu Íslandi heldur fyndist þeir vera sjálfstæð þjóð sem ætti rétt á landi sínu og væru tilbúnir til að taka við öllum sínum málum af íslenska ríkinu á friðsamlegan hátt. Ættu þeir þá ekki bara rétt á því? Eða ætti íslenska ríkið senda "míni" herinn hans Björns Bjarnasonar út í eyjar til að tryggja yfirráð Íslands í Eyjum og ekki síst koma í veg fyrir að t.d. útgerðarmenn og verkalýðsforkólfar úr Eyjum gætu farið um heiminn og kynnt sinn málstað?

Bara svona pæling......

Hjalti Finnsson (IP-tala skráð) 1.6.2009 kl. 07:43

12 identicon

Tíbetar hafa eigið tungumál og letur óskylt kínversku letri og tungumáli. Tíbetar hafa trúarbrögð og menningu sem eru frábrugðin menningu og trúarbrögðum Kína. Tíbetar hafa sinn eigin þjóðfána og í Tíbet er meira að segja kynþáttur frábrugðinn þeim kínverska.

Þú segist hafa talað við fræðimenn í Kína um Tíbet. Ég hef talað við útlaga á Indlandi um Tíbet og ég treysti þeim frekar heldur en fræðimönnum í ríki sem ber ábyrgð á dauða allt að 100 milljón eigin þegna. Fræðimaður í Kína getur ekki verið hlutlaus varðandi málefni Tíbets því ef hann væri það þá væri hann ekki fræðimaður í Kína.

Matthías (IP-tala skráð) 1.6.2009 kl. 10:33

13 identicon

Sammála Matthíasi-

Elín (IP-tala skráð) 1.6.2009 kl. 11:54

14 Smámynd: Lárus Vilhjálmsson

Sæll Arnar.

Samkvæmt þinni röksemdarfærslu þá ættu allflest sjálfstæð ríki jarðar engan tilverurétt og ættu í raun að tilheyra nýlenduveldunum sem réðu þeim í hundruðir ára.  Bretar, Danir, Austuríkismenn, Frakkar, Spánverjar,  Rússar  og fleirri ættu kannski að fara ihuga að innlima þær þjóðir sem tilheyrðu nýlenduveldi þeirra í hundruði ára. Mætti þar t.d. nefna Indland, Pakistan, Ástralíu, Ísland, Noreg, Tékkland, Ungverjaland, Bosníu, Króatíu, flest lönd Afríku, Suður-Ameríku og svo mætti lengi telja.

Eins var það að árið 1200 vorum við Íslendingar sjálfstæð þjóð, gamli sáttmáli var gerður 1262.

Arnar, aðalatriðið er sjálfsákvörðunarréttur fólks.  Ef. td vestmannaeyingar vildu sjálfstæði frá Íslandi þá væri það sjálfsagt ef fólkið sem býr þar vildi það.

Lárus Vilhjálmsson, 1.6.2009 kl. 12:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Eyjarnar

Höfundur

Arnar G. Hjaltalín
Arnar G. Hjaltalín
Starfa sem formaður Drífanda stéttarfélags og áhugamaður um blómlega byggð í Eyjum þmt. Íslandi.

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband